Orkuveita Húsavíkur óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs árs og þakkar fyrir viðskiptin á liðnum árum. Um leið viljum við minna viðskiptavini á að skila inn álestri af hitaveitumælum.
Álestur er nauðsynlegur við árlegt uppgjör og það er hagur notenda að áætlun sé rétt þannig að reikningar taki mið af raunnotkun.
Skráning álestra hitaveitumæla á „mínum síðum“ á vefsvæði OH er mjög einföld, en til þess að skila inn nýjum álestrum þarf að fara inn á www.oh.is og velja:
Þeir sem ekki hafa tök á að senda inn álestur á „mínum síðum“, geta sent álestur eða mynd af mælinum í tölvupósti á netfangið: oh@oh.is eða hringt í síma 464-9850.
Ekki er víst að starfsmenn OH fari í hús til að lesa af mælum á næstu mánuðum og því er enn mikilvægara að notendur sendi sjálfir inn álestur.
Álestrum þarf að vera búið að skila inn fyrir 31. janúar 2021 til að komast hjá álestrargjaldi.
Með kveðju
Starfsfólk Orkuveitu Húsavíkur ohf.