Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2021
09.04.2021
Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf. árið 2021 verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík, miðvikudaginn 21. apríl kl. 10:00
Dagskrá skv. 14. grein samþykkta félagsins:
-
Skýrsla stjórnar. Hluthafar upplýstir um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári.
-
Ársreikningur OH. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
-
Ákvörðun tekin um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
-
Kjör stjórnar.
-
Kjör endurskoðanda.
-
Ákvörðun tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
-
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Með þessu viljum við bjóða yður að taka þátt í fundinum. Í ljósi samkomutakmarkana er vakin athygli á leyfilegum hámarksfjölda fundargesta.