Hlutverk
Tilgangur Orkuveitu Húsavíkur ehf. er orkurannsóknir, vinnsla og framleiðsla raforku, varma og vatns og hvers konar annarra auðlinda, dreifing og sala afurða fyrirtækisins ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað félagsins, sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni. Félaginu er heimilt að standa að stofnun og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum.
- Orkuveita verði öflugra orkufyrirtæki sem vinni og selji umhverfisvæna orku.
- Orkuveitan verði leiðandi í tækni við nýtingu lághita á Íslandi.
- Orkuveitan verði framsækið í nýsköpun í vöru og þjónustuframboði.
- Fjarskiptakerfi Orkuveitunnar verði styrkt til að breikka tekjugrunn fyrirtækisins.
- Afkoma fyrirtækisins verði með því besta sem þekkist innan orkugeirans.
- Að vera leiðandi í sölu umhverfisvænnar orku og veita þjónustu sem skilar viðskiptavinum hagkvæmustu lausnum sem völ er á hverju sinni.
- Leggja áherslu á gæði þeirrar vöru og þjónustu sem fyrirtækið innir af hendi.
- Tryggja viđskiptavinum þjónustu á sambærulegu verði og lægst gerist á landinu.
- Að hafa að leiðarljósi að nýta náttúruauðlindir héraðsins til til að bæta hag samfélagsins með eins litlum umhverfisáhrifum og kostur er.
- Að vinna markvisst að aukinni notkun vistvænnar orku.
- Að reksturinn skili góðri afkomu að teknu tilliti til þess fjármagns sem til þess er notað og í samanburði við önnur fyrirtæki orkugeirans.
- Að byggja upp þjónustuframboð sem auki virði OH og stuðli að góðum búsetuskilyrðum í héraðinu.
- Að vera í fremstu röð hvað varðar starfshætti og tækniþekkingu.
- Að hafa á að skipa hæfu starfsfólki sem tryggir viðskiptavinum góða þjónustu, hagkvæmni og afhendingaröryggi.
