Orkuveita Húsavíkur setur sér eftirfarandi markmið fyrir gæðastjórnun sína:
• Ætíð sé nægjanlegt framboð raforku með þeim gæðum sem lög og reglugerðir gera kröfu um.
• Koma upp og viðhalda kerfi, er tryggi stöðugt eftirlit með virkjum og tækjum veitunnar.
• Byggja upp kerfi og vinnuaðferðir er tryggi hagkvæman rekstur veitunnar.
• Rekstur, viðhald, endurnýjun og nýframkvæmdir séu ætíð í samræmi við gildandi reglugerðir.
• Tryggja starfsfólki öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
Töluleg markmið hafa verið skilgreind fyrir þá þætti í rekstri Orkuveitu Húsavíkur sem þarfnast sérstaks eftirlits eða eru mikilvægir til að uppfylla ofantalin meginmarkmið. Þau eru eftirfarandi:
1. Nægjanleg raforka.
2. Fullnægjandi gæði.
3. Rekstur í samræmi við lög og reglugerðir.
4. Starfsmannamál.
1. Nægjanleg raforka
Nægjanleg raforka miðast við að fullnægja mesta álagi á veitusvæðinu sem er u.þ.b. 3,4 MW.
2. Fullnægjandi gæði
Lágspennudreifikerfi veitunnar er rekið með þrífasa riðstraumi, og samkvæmt staðli um málspennu í lágspennudreifikerfum, SAM HS 472 S1 skal málgildi spennu á afhendingarstað í enda heimtaugar vera:
• 230 V á milli fasa í þriggja fasa, þriggja leiðara kerfum
• 230 V á milli fasa og N-leiðara og 400 V á milli fasa í þriggja fasa, fjögurra leiðara kerfum
Spenna á afhendingarstað skal vera ± 10 %.
Orkuveita Húsavíkur setur hins vegar þau markmið að spenna á afhendingarstað skuli vera á bilinu ± 5 % miðað við ofangreind málgildi.
3. Rekstur í samræmi við lög og reglugerðir
Orkuveita Húsavíkur hefur undir höndum nýjustu útgáfur skjala sem varða starfsemi hennar. Þessi skjöl eru m.a. lög, reglugeðir, orðsendingar, fyrirmæli og staðlar. Þessi skjöl eru varðveitt hjá umsjónarmanni gæðastjórnunar og er hægt að nálgast þau þar. Athuga þarf að þau eintök sem unnið er með séu nýjustu útgáfur hverju sinni, og sér umsjónarmaður gæðastjórnunar um að svo sé.
4. Starfsmannamál
Við veituna skal vera einn fastráðinn verkstjóri. Skal hann vera hæfur til að gegna starfinu, og ef nauðsyn ber til skal hann sendur á námskeið fyrir verkstjóra.
Hver starfsmaður fær upplýsingar um sitt verksvið, ábyrgðarsvið, endurmenntun, þjálfunaráætlun og allar verklagsreglur við framkvæmd gæðastjórnunar. Verk- og ábyrgðarsvið endurskoðist árlega, eða eftir þörfum. Hvert nýtt stig endurmenntunar skal skráð.
Fyrir hvert starf er gerð starfslýsing þar sem fram kemur ábyrgðarsvið, staða í kerfinu, verksvið og hæfniskröfur. Að auki fylgir lýsing á þeirri menntun og hæfni sem krafist er. Nýtt starfsfólk sem vinnur störf tengd hönnun, uppsetningu, rekstri, viðhaldi og vinnu við rafbúnað skal læra störf sín á fullnægjandi hátt.
Nýtt starfsfólk skal fá leiðsögn um öryggismál veitunnar og fara skal yfir öryggisstjórnunarkerfi veitunnar með því. Þá skal vísa því á hvar nauðsynlegar reglugerðir, lög, orðsendingar og annað það sem snýr að öryggisþáttum veitunnar er að finna.
Markmið Orkuveitunnar er að tryggja öryggi og góðan aðbúnað á vinnustað. Halda skal skrá yfir öryggis og umgengnisreglur, slysaskráningu og veikindaskráningu sem hver starfsmaður sér um að skrá í verkbókhald en utanumhald er í höndum launafulltrúa.
