Fréttir

Ystihver á Hveravöllum látinn gjósa

Í dag var Ystihver á Hveravöllu látinn gjósa. Hverinn er sá stærsti á Hveravallasvæðinu og er hitinn í honum við suðumark. Tilefnið var heimsókn Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna undir leiðsögn Lúðvíks S. Georgssonar og Ingvars Birgis Friðleifssonar. Starfsmenn Orkuveitu Húsavíkur ehf. voru á svæðinu til að hafa eftirlit með með viðburðinum en loka þarf fyrir rennsli úr hvernum í safntank, þar sem útfellingar myndast í vatninu við gosið og verður hverinn látinn hreinsa sig næsta sólarhringinn.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning