
Ostakarið á Húsavíkurhöfða
Ekkert vatn hefur verið í ostakarinu á Húsavíkurhöfðanum í nokkra mánuði. Ástæðan er sú að á seinni hluta ársins 2008 tærðist í sundur keðja sem hélt uppi dælu í Höfðaholunni (holu 1). Við það féll dælan ofan í holuna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist dælan ekki upp úr holunni og hefur því engu vatni verið dælt í karið. Nú fyrir helgi komu starfsmenn Orkuveitunnar fyrir jektordælu við holuna og er komið vatn í karið. Geta áhugasamir því farið og baðað sig í heilsuvatninu á Höfðanum.