Skrifstofa Orkuveitunnar flytur
Almennt - mánudagur 18.maí.09 20:38 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 310

Skrifstofa Orkuveitu Húsavíkur ehf. flytur á næstu dögum. Til stendur að flytja í stjórnsýsluhús Norðurþings, þar sem Orkuveitan var áður til húsa. Orkuveitan er því svo að segja komin aftur heim til eiganda síns.
Vegna flutninganna verður skrifstofa Orkuveitunnar lokuð miðvikudaginn 20.maí. Föstudaginn 22.maí verður Orkuveitan búin að koma sér fyrir í stjórnsýsluhúsinu, Ketilsbraut 7-9.
