Rafmagnslaust í norðurbæ
Almennt - miðvikudagur 11.nóv.09 13:03 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 231
Rafmagnslaust varð í norðurhluta Húsavíkurbæjar klukkan 10:11 nú í morgun. Rafmagn var komið aftur á um klukkan 11. Ástæða þess að leysti út er enn ókunn. Á þessari stundu er talið að bilun hafi orðið í háspennustreng. Unnið er að bilanagreiningu.
