OH og Orkusalan styrkja Björgunarsveitina
Almennt - fimmtudagur 28.jan.10 15:11 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 227
Orkuveita Húsavíkur hefur á undanförnum árum styrkt Björgunarsveitina Garðar á Húsavík. Engin undantekning verður á því í ár en ánægjulegt er frá því að segja að nú munu taka höndum saman Orkuveita Húsavíkur og Orkusalan og styrkja Björgunarsveitina. Það er fyrirtækjunum ánægja að leggja jafn mikilvægu verkefni lið. Sveitin gegnir þýðingarmiklu starfi og hefur á neyðarstundu aðstoðað fólk í vanda, heima og að heiman.
