Mælingar á borholuvatninu á Höfða
Borholuvatnið sem leitt er í Ostakarið á Húsavíkurhöfða er fyrir margar sakir merkilegt. Vatnið er til að mynda gott til heilsubaða og er það sagt hafa lækningamátt, þar eð það slær á einkenni Psoriasis sjúkdómsins. En vatnið er einnig notað í rannsóknir og gegnir hlutverki við mælingar til að þróa jarðefnafræðilegar aðferðir til að segja fyrir um jarðskjálfta og til að þróa sjálfvirkt efnavöktunarkerfi til þess að vara við jarðskjálftum.
Anna Margrét Kornelíusdóttir, nemi í umhverfis- og orkufræði við Háskólann á Akureyri og Birkir Heimisson, nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands hafa í sumar unnið að því að koma verkefni af stað sem felur í sér að skoða breytingar á efnainnihaldi vatnsins fyrir og eftir jarðskjálfta og koma upp rauntímavöktun til að gefa fyrirvara vegna yfirvofandi jarðskjálfta byggðum á niðurstöðunum. Helga Rakel Guðrúnardóttir, meistaranemi í auðlindafræði, tekur því næst verkefnið að sér í heild. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Háskólasjóði KEA.
Mælingar á borholuvatninu á Höfða hafa verið gerðar um nokkurt skeið eða frá því í júlí 2002 (sjá t.d. Claesson, L., Skelton, A., Graham, C. og Mörth, C.M., 2007. The timescale and mechanisms of fault sealing and water-rock interaction after an earthquake. Geology. 7, 1-14). Efnamælingarnar hafa farið fram á rannsóknarstofu við Háskólann í Stokkhólmi. Þann 16.september 2002 varð jarðskjálfti við Grímsey 5,8 á Richter að stærð. Aukning í styrk nokkurra snefilmálma komu fram í borholuvatninu áður en jarðskjálftinn varð. Skýringin er væntanlega vegna breytinga í lekt jarðskorpunnar í undanfara skjálftans en einnig er mögulegt að breytingarnar geti stafað af neðansjávareldvirkni eða breytingum í bjögun jarðskorpunnar. Dagana eftir jarðskjálftann urðu breytingar á öðrum efnum sem gefa til kynna að ekki hafi verið um blöndun að ræða heldur hafi ný sprunga opnast og önnur lokast. Einnig var sýnt fram á að um eldra vatn var að ræða eftir skjálftann en fyrir hann.
Verður áhugavert að fylgjast með þessu verkefni sem Anna Margrét, Birkir og Helga Rakel vinna að, enda fylgir það eftir þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið með greiningu á samspili jarðskjálfta og efnabreytinga.
