Fréttir

Jarđskjálftarannsóknir viđ borholuna á Húsavíkurhöfđa

Nú í sumar munu mælar verða settir við borholuna á Húsavíkurhöfða í tengslum við rannsókn á efnabreytingum í vatni fyrir jarðskjálfta. Helga Rakel Guðrúnardóttir, meistaranemi við Háskólann á Akureyri og Stokkhólmsháskóla, mun sjá um uppsetninguna og tengingu við jarðskjálftaeftirlitskerfi Veðurstofu Íslands en fyrsti hluti verkefnisins mun taka tvö ár.

Stokkhólmsháskóli hefur síðan 2002, í samvinnu við Orkuveitu Húsavíkur, tekið sýni vikulega úr borholunni og er því til mikið gagnasafn um breytingar á efnasamsetningunni. Sésta hafa breytingar á tilteknum efnum allt að tveimur vikum fyrir jarðskjálfta. Von er bundin við að með þessum rannsóknum sé hægt að þróa sjálfvirkt kerfi til að spá fyrir um jarðskjálfta með því að fylgjast með efnabreytingum í vatni.

Samhliða mælingunum á Húsavíkurhöfða eru gerðar mælingar í borholunni við Hafralækjaskóla.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning