Gos í Ystahver
Í morgun var Yztihver á Hveravöllum látinn gjósa. Eins og fyrri ár var tilefnið koma Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna sem heimsækja svæðið á árlegri ferð sinni um landið. Yztihver er stærsti hverinn á Hveravallasvæðinu og er hitinn í honum við suðumark. Starfsmaður Orkuveitunnarvar á svæðinu til að hafa eftirlit með gosinu auk þess að loka fyrir rennsli úr hvernum í safntank, en útfellingar myndast í vatninu við gosið. Hverinn mun hreinsa sig næsta sólarhringinn.
Óvenju fjölmennt var þegar Yztihver gaus nú í morgun. Ferðamenn sem leið áttu um svæðið stoppuðu til að berja gosið augum auk fréttamanna frá RÚV og Skarpi. Þess utan hafa nemendur Jarðhitaskólans aldrei verið fleiri en í ár. Jarðhitaskólinn starfar innan Orkustofnunar (www.os.is) og tilheyrir Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem stofnaður var 1975 með það að markmiði að koma á laggirnar alþjóðlegum háskóla þar sem þar sem aðstoð við þróunarlöndin væri í brennidepli. Aðalstöðvar háskólans eru í Tókýó í Japan en kennsla fer fram í fjölmörgum stofnunum um allan heim, þ.m.t. Íslandi.
