Orkuveita Húsavíkur
		<description>Orkuveita Húsavíkur</description>
		<language>is</language>
Lokað á skrifstofu OH
    <description>Skrifstofa Orkuveitu Húsavíkur verður lokuð frá og með mánudeginum 26. júlí til og með föstudagsins 6. ágúst. Bilanasími fyrir heitt og kalt vatn er 4640909. </description>
Gos í Ystahver
    <description>Í morgun var Yztihver á Hveravöllum látinn gjósa. Eins og fyrri ár var tilefnið koma Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna sem heimsækja svæðið á árlegri ferð sinni um landið. Yztihver er stærsti hverinn á Hveravallasvæðinu og er hitinn í honum við suðumark. Starfsmaður Orkuveitunnarvar  á svæðinu til að hafa eftirlit með gosinu auk þess að loka fyrir rennsli úr hvernum í safntank, en útfellingar myndast í vatninu við gosið. Hverinn mun hreinsa sig næsta sólarhringinn.Óvenju fjölmennt var þegar Yztihver gaus nú í morgun. Ferðamenn sem leið áttu um svæðið stoppuðu til að berja gosið augum auk fréttamanna frá RÚV og Skarpi. Þess utan hafa nemendur Jarðhitaskólans aldrei verið fleiri en í ár. Jarðhitaskólinn starfar innan Orkustofnunar (www.os.is) og tilheyrir Háskóla Sameinuðu þjóðanna sem stofnaður var 1975 með það að markmiði að koma á laggirnar alþjóðlegum háskóla þar sem þar sem aðstoð við þróunarlöndin væri í brennidepli. Aðalstöðvar háskólans eru í Tókýó í Japan en kennsla fer fram í fjölmörgum stofnunum um allan heim, þ.m.t. Íslandi.  </description>
Jarðskjálftarannsóknir við borholuna á Húsavíkurhöfða
    <description>Nú í sumar munu mælar verða settir við borholuna á Húsavíkurhöfða í tengslum við rannsókn á efnabreytingum í vatni fyrir jarðskjálfta. Helga Rakel Guðrúnardóttir, meistaranemi við Háskólann á Akureyri og Stokkhólmsháskóla, mun sjá um uppsetninguna og tengingu við jarðskjálftaeftirlitskerfi Veðurstofu Íslands en fyrsti hluti verkefnisins mun taka tvö ár.</description>
Loka þarf fyrir heitt vatn föstudaginn 4.júní
    <description>Loka þarf fyrir heitt vatn föstudaginn 4. júní í miðgarði, Skálabrekku og Ketilsbraut vegna viðgerðar. Verið er að ljúka viðgerð vegna bilunar sem átti sér stað 18. maí. Lokað verður fyrir vatnið um kl. 10:00 og mun lokunin vara fram eftir degi.</description>
Lokað fyrir heitt vatn miðgarði, Skálabrekku og Ketilsbraut
    <description>Vegna viðgerðar þarf að loka fyrir heitt vatn miðgarði, Skálabrekku og Ketilsbraut. Áætlað er að loka fyrir um kl. 13:00 og að viðgerð taki um 1 1/2 klukkustund. Vatn ætti því að vera komið aftur á í dag um 14:30. </description>