Breytingar á gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur
Frá og með 1. janúar 2010 verða breytingar á gjaldskrá Orkuveitu Húsavíkur. Hækkun verður á öllum liðum gjaldskrárinnar um 9 % til samræmis við hækkun vísitölu frá síðustu ákvörðun. Enn fremur hefur verið gerð sú breyting að grunnverð fyrir sumarhús, fjárhús, hesthús og sambærileg hús er fast gjald og minnsta notkun á heitu vatni er 350 m3/ár.
Þeir sem láta renna hjá sér umfram 350 m3/ár borga til samræmis við rúmmetrafjöldann eins og verið hefur. Þeir sem láta renna minna en 350 m3/ár greiða eftir sem áður fyrir 350 m3/ár. Með þessari breytingu eru eigendur umræddra húsa hvattir til að láta vatnið renna hjá sér allan ársins hring til að verja kerfin skemmdun, en á því hefur t.a.m. borið að það frjósi í lögnum og mælar eyðileggist þar sem lítið er látið renna.
