Bilun í spenni á Hafnarsvæði- suðurgarði
Almennt - þriðjudagur 11.ágú.09 16:55 - Guðrún Erla Jónsdóttir - Lestrar 320
Síðastliðinn mánudag varð bilunar vart í 1000 kVA spenni í spennistöð á hafnarsvæðinu, suðurgarði. Í fyrstu voru vonir bundnar við að hægt væri að gera við á staðnum en reyndin var að senda þurfti spennirinn suður til viðgerðar. Á meðan spennirinn er í viðgerð þjónar annar 800 kVA spennir svæðinu. Rafmagnslaust var á suðurgarði til um kl. 18 sama dag vegna bilunarinnar.
