Fréttir

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf.

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf. vegna starfsársins 2008 var haldinn í dag, 27. apríl 2009. Á fundinum voru endurkjörnir í stjórn Orkuveitunnar þeir Bergur Elías Ágústsson, sem áfram sinnir formennsku, Sigurjón Benediktsson og Aðalsteinn Árni Baldursson. Varamenn voru kjörnir Jón Grímsson og Þráinn G. Gunnarsson.

Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, fór með umboð sveitarfélagsins á fundinum. Norðurþing er eigandi að 100% hlut í Orkuveitu Húsavíkur ehf.

Skýrslu stjórnar og ársreikning ársins 2008 má finna hér á vefnum undir Skýrslur/greinar



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning