Fréttir

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ehf. var haldinn fimmtudaginn 29.apríl í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. Á aðalfundinum voru endurkjörnir í stjórn þeir Bergur Elías Ágústsson, sem áfram sinnir stjórnarformennsku, Aðalsteinn Árni Baldursson og Sigurgeir Höskuldsson. Varamenn stjórnar verða jafnframt þeir sömu, Þráinn G. Gunnarsson og Jón Grímsson. Gunnlaugur Stefánsson fór með umboð sveitarfélagsins, sem á 100% hlut í Orkuveitunni, á fundinum. Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ehf. fyrir starfsárið 2009 og skýrsla stjórnar verða birt á heimasíðu OH þegar byggðarráð hefur lokið síðari umfjöllun um samstæðureikning Norðurþings, sem OH er hluti af.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning